flugfréttir
Icelandair tekur Boeing 737 MAX í notkun
TF-ICE í lágflugi yfir Reykjavíkurflugvöll í gær / Ljósmynd: Einar Logi Thorlacius Þorleifsson
Icelandair hefur formlega tekið í notkun fyrstu nýju Boeing 737 MAX flugvélina af sextán sem félagið hefur fest kaup á.
Flogið var stutt hringflug yfir Íslandi með gesti og fjölmiðlafólk víða að úr heiminum og síðan lent á Reykjavíkurflugvelli þar sem starfsfólki Icelandair var boðið að kynna sér vélina, sem fengið hefur heitið Jökulsárlón.
Nýju MAX vélarnar verða notaðar í almennu áætlunarflugi Icelandair til áfangastaða bæði í Evrópu og Norður-Ameríku. Boeing MAX 8 og MAX 9 taka 160 til 178 farþega og bætast við Boeing 757 og Boeing 767 flota félagsins á næstu þremur árum.
„Þetta eru ánægjuleg tímamót. Upphafið að endurnýjun flugflota Icelandair sem er stórt og spennandi verkefni. Þessi flugvélagerð hentar leiðakerfi okkar einstaklega vel, gefur okkur tækifæri til að byggja upp nýja markaði og styrkja þá sem fyrir eru“, segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair.
Áhöfnin sem flaug TF-ICE í útsýnisfluginu þann 14. apríl ásamt yfirmönnum Icelandair
Fyrstu farþegaflugin á MAX vélunum frá Boeing voru í maí á síðasta ári og er Icelandair meðal fyrstu flugfélaga til að taka þær í notkun. Um er að ræða nýja útgáfu af Boeing 737 sem eru mest selda farþegaflugvél allra tíma.
MAX útgáfan hefur bætt um betur og engin flugvél í sögu Boeing hefur selst jafn hratt en nú liggja fyrir pantanir í rúmlega 4.300 MAX þotur frá flugfélögum í 92 löndum.
Mikil rekstrarhagkvæmni einkennir þessa flugvélagerð sem skýrir vinsældir hennar en eldsneytisnotkun hennar er umtalsvert minni en á eldri gerðum og viðhaldskostnaður sömuleiðis.
Boeing 737 MAX eru hljóðlátar og ný hönnun farþegarýmis eykur þægindi flugfarþega. Síðustu vikurnar hafa sérfræðingar í tækniþjónustu Icelandair útbúið vélina í anda félagsins; sett í hana sæti, afþreyingarkerfi og annað sem farþegar Icelandair eiga að venjast.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.