flugfréttir
Reyndi að ræna farþegaþotu vopnaður penna
Ljósmynd sem tekin var um borð í þotu Air China í nótt sem sýnir farþegann með flugfreyjuna í gíslingu
Farþegi í innanlandsflugi í Kína með Air China gerði tilraun til flugráns er hann tók flugfreyju og hélt henni í gíslingu með penna að vopni sem hann bar að hálsi hennar.
Þotan, sem er af gerðinni Airbus A321, fór í loftið frá borginni Changsha rétt eftir miðnætti í nótt
að íslenskum tíma áleiðis til Peking þar sem vélin átti að lenda klukkan 3 í nótt.
Á miðri leið stóð einn farþegi upp, gekk að fremra eldhúsi vélarinnar og tók flugfreyju hálstaki og hélt
skrautskriftarpenna með hvössum oddi að hálsi hennar.
Ekki kemur fram hvort að farþeginn hafi farið fram á einhverjar kröfur en flugmennirnir ákváðu að lenda
vélinni í borginni Zhengzhou þar sem vélin lenti um tvöleytið í nótt.
Lögregla fór um borð í þotuna og náði að yfirbuga manninn tveimur tímum eftir lendingu
og var hann fjarlægður og settur í varðhald.
Fram kemur að um 41 árs karlmann hafi verið að ræða sem hefur skráða sjúkrasögu vegna andlegra veikinda.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.