flugfréttir
Tvær litlar flugvélar rákust saman í aðflugi í Þýskalandi
- Báðir flugmennirnir létust í slysinu
Slysið átti sér stað í gærkvöldi skammt norðaustur af Stuttgart í Þýskalandi
Tveir eru látnir eftir flugslys í Þýskalandi þar sem tvær litlar flugvélar rákust saman á flugi, skammt norðaustur af Stuttgart í gær.
Önnur vélin var fisflugvél af gerðinni Dallach D.4B Fascination og var vélin í aðflugi að Schwäbisch Hall flugvellinum
þegar hún rakst á kennsluflugvél af gerðinni Cirrus SR20 sem var einnig á lokastefnu að flugvellinum.
Ekki er vitað um orsök slyssins en samkvæmt fréttamiðlinum Bild.de kemur fram að talið
sé að annar flugmaðurinn hafi blindast af kvöldsólinni og ekki séð hina flugvélina.
Flugvélarnar féllu til jarðar á graslendi á opnu svæði skammt undan flugbrautinni en töluverður eldur kom upp
í annarri vélinni.
Vélarnar voru báðar í aðflugi að flugvellinum er þær rákust saman
„Þær voru báðar í aðflugi að flugvellinum. Það er ekki mikið vitað annað en það“, segir talsmaður
lögreglunnar í Þýskalandi.
Cirrus-flugvélin var í eigu flugskólans Aero-Beta Flight Training í Stuttgart en fisflugvélin var einkaflugvél.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.