flugfréttir
Hóf sig á loft á meðan önnur flugvél var enn á brautinni
Boeing 737-800 þota Gol Linhas Aéreas í flugtaki á flugvellinum í Recife
Flugmálayfirvöld í Brasilíu rannsaka nú atviki sem átti sér stað á flugvellinum í borginni Brasilia er farþegaþota af gerðinni Boeing 737-800 hóf sig á loft frá flugvellinum í höfuðborg landsins á meðan önnur flugvélar, sem var nýlent á vellinum, var ekki búin að yfirgefa brautina.
Boeing 737-800 þotan, sem er frá flugfélaginu Gol Linhas Aéreas, var í flugtaksbruni
þegar flugmenn vélarinnar komu auga á herflugvél sem var enn á brautinni eftir lendingu.
Þotan hélt flugtakinu áfram og hóf sig á loft og fór mjög nálægt yfir herflugvélina sem var að yfirgefa
brautina en sú flugvél var af gerðinni Embraer C-95 Bandeirante.
Flugmenn Boeing 737 þotunnar komu ekki auga á herflugvélina er þeir hófu flugtak
vegna bogalögun brautarinnar þar sem flugbrautarendinn öðrum meginn liggur lægra
yfir sjávarmáli.
Flugmennirnir komu svo auga á flugvélina þegar þeir nálguðustu hæðsta punkt brautarinnar
en þá var þotan kom á of mikinn hraða til að stöðva flugtakið og komin yfir V1 hraða.
Fram kemur að herflugvélin hafði ekki yfirgefið brautina þar sem flugmennirnir
voru í vandræðum með að finna þá akbraut sem þeim var sagt að fara inn á eftir lendingu.
Brasilísk flugmálayfirvöld flokka atvikið sem mjög alvarlegt atvik og er það nú til rannsóknar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.