flugfréttir
Primera Air tekur við fyrstu Airbus A321neo þotunni
- Verða því næst fyrsta flugfélagið til að fá hina langdrægu A321LR þotu
Fyrsta Airbus A321neo þotan fyrir Primera Air
Primera Air hefur fengið sína fyrstu A321neo þotu afhenta frá Airbus við hátíðlega athöfn sem fram fór við verksmiðjurnar í Hamborg.
Andri Már Ingólfsson, framkvæmdarstjóri Primera Air og forstjóri
Primera Travel Group, var viðstaddur afhendinguna ásamt Kimon Sotiropoulos,
sölustjóra Airbus fyrir Norðurlöndin og Mið-Evrópu.
Fyrir 10 mánuðum síðan pantaði Primera Air tíu Airbus A321neo þotur
en allar vélarnar eru teknar á leigu, tvær frá GECAS og hinar átta
frá öðrum flugvélaleigum á borð við AerCap sem mun verða félaginu út um
tvær langdrægar þotur af gerðinni Airbus A321LR.
Airbus A321neo þotur Primera Air koma með LEAP-1A hreyflum og taka
198 farþega; sextán á premium-farrými og 182 á almennu farrými.
Primera Air ákvað að velja A321neo vegna framúrskarandi eiginleika og hagkvæmni,
þægindi og miklu flugþoli en A321neo gæti flogið frá Keflavíkurflugvelli
til Mexíkóborgar í beinu flugi og A321LR til Ekvador í Suður-Ameríku.
Primera Air mun nota Airbus A321neo þoturnar í flugi yfir Atlantshafið
frá Bretlandseyja og Frakklandi til Norður-Ameríku.
Félagið mun nota Airbus A321neo og A321LR þoturnar í flug milli Evrópu og Ameríku
Primera Air verður fyrsta flugfélagið til að taka við hinni langdrægu Airbus A321LR
þotu sem mun geta flogið 4.750 mílur (nm) sem er lengsta flug sem
mjóþota með einum gangi hefur flogið hingað til.
Airbus flaug á dögunum fyrstu A321LR tilraunarþotunni sinni frá Seychelles-eyjum
til Toulouse í Frakklandi og setti með því met er þotan flaug lengsta flug
sem farþegaþota hefur flogið sem flokkast ekki sem breiðþota.
Airbus kynnti A321LR til leiks í janúar árið 2015 sem A321neoLR og var greint
frá því að þotan hefði 100 nm lengra flugdrægi heldur en Boeing 757-200.
Þá á Primera Air einnig von á tíu Boeing 737 MAX 9 þotum en sú fyrsta verður
afhent félaginu á næsta ári en félagið hefur kauprétt á 10 þotum til viðbótar af
þeirri gerð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.