flugfréttir
JPMorgan-bankinn undirbýr tilboð í Norwegian fyrir IAG
IAG greindi frá því í byrjun mánaðarins að til stæði að festa kaup á 4,6% hlut í Norwegian
IAG, móðurfélag British Airways, hefur falið bandaríska bankanum JPMorgan til þess að undirbúa tilboð í norska flugfélagið Norwegian.
Samkvæmt spænska dagblaðinu Expansion þá kemur fram að IAG sé reiðubúið að bjóða
Bjørn Kjos, framkvæmdarstjóra Norwegian, 660 milljarða króna fyrir flugfélagið norska.
Gert er ráð fyrir að IAG muni veita nánari upplýsingar um fyrirhuguð kaup á Norwegian þegar
fyrirtækið mun birta afkomuskýrsluna eftir fyrsta ársfjórðung ársins.
IAG greindi frá því í byrjun mánaðarins að til stæði að festa kaup á 4,6% hlut í Norwegian í þeim tilgangi
að tryggja sér möguleika á að taka yfir allan rekstur félagsins síðar meir.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.