flugfréttir

Fimmta Dreamliner-þotan sem smíðuð var fer í niðurrif

- Ein af þeim Boeing 787 þotum sem voru of þungar

22. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 23:16

Fimmta Dreamliner-þotan sem smíðuð var, N787FT, rifin niður á Paine Field

Boeing hefur hafið niðurrif á einni af þeim fyrstu Dreamliner-þotum sem smíðaðar voru en um er að ræða fimmtu Boeing 787-8 tilraunarþotuna sem smíðuð var.

Þotan er ein af þeim sex tilraunarþotum sem smíðaðar voru og jafnframt ein af þeim Boeing 787 þotum sem voru „of þungar“ en útséð var um að hún yrði seld. Þar af leiðandi var ákveðið að fá verktaka til þess að rífa vélina á Paine Field flugvellinum í Seattle.

Ákveðið var að nota niðurrifið sem þjálfun í þeirri aðferð sem notuð er þegar flugvél er rifin í sundur fyrir varahluti.

Boeing náði hægt og rólega að selja um tólf Dreamliner-þotur sem voru of þungar og voru þær þar af leiðandi seldar með veglegum afslætti.

Boeing sá strax fram á árið 2009 að ekki væri hægt að selja fyrstu sex Dreamliner-þoturnar þar sem þær gengust undir það miklar endurbætur vegna mistaka við enduruppsetningu á íhlutum frá birgjum sem gerðu vélarnar allt of þungar.

Ekkert flugfélag vildi kaupa þær en á endanum náðist að selja nokkrar af þotunum til Korean Air, Air Austral, Ethiopian Airlines auk fleiri flugfélaga.

Þrjár fyrstu Dreamliner-þoturnar enduðu sem safngripir og fór fyrsta eintakið af Boeing 787-8 til Chubu Centrair International flugvallarins í Nagoya, önnur Dreamliner-þotan fór á Pime Air and Space safnið í Tucson í Arizona og sú þriðja á Museum of Flight safnið í Seattle.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga