flugfréttir
Ryanair pantar 25 Boeing 737 MAX 8 þotur
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX 8 í litum Ryanair
Ryanair hefur staðfesta pöntun hjá Boeing í tuttugu og fimm farþegaþotur af gerðinni Boeing 737 MAX 8.
Pöntunin bætist við þá pöntun sem félagið pantaði árið 2014 í 110 eintök af Boeing 737 MAX 200 og
á félagið því von á 135 Boeing 737 MAX þotum á næstu árum.
Pöntunin hefur verið á lista hjá Boeing undir nafnleynd og hefur nú komið í ljós
að pöntunin er á vegum Ryanair.
Boeing 737 MAX 8 þoturnar sem Ryanair mun fá koma með átta fleiri sætum samanborið
við þær 737-800 þotur sem félagið hefur í flotanum.
Ryanair er stærsti viðskiptavinurinn í heimi er kemur að Boeing 737-800 og hefur stærsta
Boeing-flugflota í Evrópu en í síðasta mánuði tók félagið á móti sinni fimm hundruðustu
Boeing 737-800 þotu frá upphafi.
Pöntunin í Boeing 737 MAX 8 þoturnar tuttugu og fimm er metin á 3 milljarða bandaríkjadali
sem samsvarar 301 milljarði króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.