flugfréttir
Hundurinn (TF-DOG) í lágflugi yfir Reykjavík
- TF-DOG er þrettánda Airbus A321 þota WOW air
TF-DOG tók lágflug yfir Reykjavík á leið sinni til Keflavíkur eftir afhendingarflug frá Hamborg
Hundurinn er komin til landsins, eða TF-DOG, sem er nýjasta farþegaþota WOW air.
TF-DOG er af gerðinni Airbus A321 og er um að ræða þrettándu A321 þotuna í flota WOW air
og stækkaði flugfloti félagsins í dag upp í nítján þotur.
TF-DOG lagði af stað í afhendingarflugið frá Hamborg klukkan 09:17 í morgun að íslenskum tíma
og var komin upp að landssteinunum klukkan 11:40.
Þotan tók þrefalt lágflug yfir Reykjavík klukkan 12:10 í 2.500 fetum og yfirflaug
braut 01/19 á Reykjavíkurflugvelli í 1.300 fetum áður en hún hélt áfram til
Keflavíkurflugvallar.
WOW air á eftir að fá fimm þotur til viðbótar afhentar á þessu ári og lýkur afhendingum á nýjum þotum árið 2018 til félagsins með fyrstu Airbus A330-900neo þotunni sem kemur til landsins fyrir árslok.
Hér að neðan má sjá TF-DOG í lágflug yfir 104 hverfið klukkan 12:21 í dag auk myndbands.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.