flugfréttir
Mun sennilega fljúga í fyrsta sinn opinberlega á Farnborough
Mitsubishi MRJ90 þotan flaug sitt fyrsta flug í nóvember árið 2015
Líkur eru á því að nýja MRJ90 farþegaþotan japanska frá Mitsubishi muni koma fram í fyrsta sinn opinberlega á flugi á flugsýningunni í Farnborough sem fram fer í júlí í sumar.
Tvö og hálft ár eru liðin frá því að MRJ90 þotan flaug sitt fyrsta flug en veruleg seinkun hefur
orðið á flugprófunum og hefur afhendingum verið frestað fimm sinnum.
Þotan hefur þurft að gangast undir miklar endurbætur, bæði á hönnun og á stjórnkerfum
en MRJ90 verður allt að 20% sparneytnari samanborið við sambærilega þotur í
sama stærðarflokki frá Embraer og Bombardier.
Talið er að fyrsta MRJ90 þotan verði afhent til ANA (All Nippon Airways) um mitt árið 2020
en sjö viðskiptavinir hafa pantað 288 eintök af þotunni með kauprétti á 184 til viðbótar.
Stærsti viðskiptavinurinn er SkyWest Airlines í Bandaríkjunum sem hefur pantað 107
eintök af þotunni en það flugfélag sér um flugrekstur fyrir Delta Connection, United Express
og fyrir American Eagle.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.