flugfréttir
Fyrsta farþegaflugið með nýrri kynslóð af Embraer-þotum
- Widerøe flýgur fyrsta flugið með Embraer E190-E2 frá Bergen til Tromsö
Embraer E190-E2 þotan í lendingu á flugvellinum í Bergen
Widerøe varð í dag fyrst allra flugfélaga í heiminum til að fljúga áætlunarflug með Embraer E190-E2 þotunni sem er ný kynslóð af E-þotunum en félagið fékk þotuna afhenta í byrjun þessa mánaðar.
Fyrsta farþegaflugið með Embraer E190-E2 fór í loftið í morgun frá Bergen áleiðis
til Tromsö þar sem þotan lenti tveimur tímum síðar og var fullbókað í vélina.
Þetta er fyrsta þotuflug Widerøe sem eingöngu hefur haft skrúfuflugvélar í flotanum af gerðinni Bombardier Dash 8.
Farþegar í fyrsta fluginu í dag upplifðu mjög hljóðláta flugferð í umhverfisvænu flugi en þotan brennir 17% minna eldsneyti
miðað við Embraer E190.
Við vissar aðstæður þá er Embraer E2 þotan allt að 50% hljóðlátari en aðrar E-þotur og þá hefur flugvélin mun meira rými
fyrir handfarangur.
Widerøe mun fá tvær Embraer E190-E2 þotur afhentar á þessu ári en félagið er einnig
með kauprétt á tólf þotum til viðbótar.
Embraer mun afhenda fyrsta eintakið af stærstu E-2 þotunni, Embraer E195-E2, árið 2019
og árið 2021 verður minnsta útgáfan afhent, Embraer E175-E2.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.