flugfréttir

Guðmundur og Valeria leiða stafræna þróun Icelandair

24. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 22:03

Guðmundur Guðnason hefur tekið við nýrri stöðu sem leiðtogi stafrænna umbreytinga hjá Icelandair á meðan Valeria Rivina hefur verið ráðinn forstöðumaður Stafrænnar Viðskiptaþróun

Tveir starfsmenn hjá Icelandair hafa tekið við tveimur nýjum stöðum innan flugfélagsins í kjölfar skipulagsbreytinga sem gerðar hafa verið en Guðmundur Guðnason og Valeria Rivina hafa tekið við sitthvorri stöðunni er kemur að stafrænni þróun.





Guðmundur Guðnason

Guðmundur Guðnason hefur tekið við nýrri stöðu sem leiðtogi stafrænna umbreytinga hjá Icelandair en hann hefur undanfarin 2 ár verið forstöðumaður í stafrænni þróun hjá Icelandair og leitt uppbyggingu á  „Digital Labs“ og þar með talið endurhönnun á stafrænu umhverfi og innviðum félagsins.

Þessi breyting er gerð til að tryggja áframhaldandi umbreytingu allrar samstæðunnar og jafnframt að halda áfram að styrkja og þróa þá einingu sem vinnur í þróun, hönnun og framleiðslu á stafrænum lausnum.

Áður en Guðmundur kom til Icelandair starfaði hann hjá Sabre Airline Solutions en hefur á sínum ferli komið að þróun hugbúnaðar, rekstri, ráðgjöf og stjórnun hjá bæði litlum sprotafyrirtækjum og alþjóðlegum stórfyrirtækjum.

Guðmundur er með BS í tölvunarfræði og er að ljúka MS gráðu í upplýsingastjórnun. Hann er giftur Ölmu Maríu Rögnvaldsdóttir hjúkrunarfræðingi og eiga þau tvö börn.

Valeria Rivina

Valeria Rivina hefur verið ráðinn forstöðumaður Stafrænnar Viðskiptaþróunnar (Digital Business Development) en Valeria hefur undanfarin tvö ár starfað sem teymisþjálfari hjá Icelandair Digital Business Development, komið að mörgum þáttum er snúa að uppbyggingu deildarinnar og innleiðingu Agile hugmyndafræðinnar.

Áður en hún kom til Icelandair starfaði hún í tvö ár sem verkefnastjóri og hópstjóri hjá Plain Vanilla. Á undan því, 2012-2014, starfaði Valeria sem hópstjóri Baksviðs hjá Nova og einnig sem sölu- og þjónusturáðgjafi hjá sama fyrirtæki á árunum 2007-2009. 

Valeria útskrifaðist með B.S.c. gráðu í Rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2012. Einnig lauk hún Diplomanámi í APME Verkefnastjórnun frá sama skóla árið 2014.

Hún stundar nú nám sem markþjálfi við Háskólann í Reykjavík og hyggur á útskrift í vor. Valeria er gift Óttari Angantýssyni, Sölustjóra hjá Ölgerðinni, og eiga þau saman tvö börn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga