flugfréttir
Hagnaður Cargolux jókst up 2.340 prósent árið 2017
- Mesti hagnaður í sögu fraktflugfélagsins
Richard Forson, framkvæmdarstjóri Cargolux
Árið 2017 var besta árið í sögu Cargolux sem uppskar methagnað en þá flaug félagið í fyrsta sinn einni milljón tonnum af flugfrakt.
Hagnaður Cargolux tuttugu og fjórfaldaðist á einu ári og jókst úr 554 milljónum króna árið 2016 upp í 12.3 milljarða árið 2017 með 132.212 selda blokktíma og daglega nýtingu upp á 15 klukkustundir.
Til samanburðar þá má geta þess að taprekstur Cargolux árið 2012 nam 3.5 milljörðum króna og 1.8 milljarði árið 2011.
„Sú gríðarlega framför sem átti sér í rekstri félagsins árið 2017 má þakka dugnaði meðal starfsfólks og ákveðni í að
gera árið það besta í sögu félagsins“, segir Richard Forson, framkvæmdarstjóri Cargolux.
Cargolux flaug með yfir 1 milljón tonn af frakt á árinu 2017 og þar á meðal var flogið með 250.000 tonn
til og frá Kína en rúm helmingurnn fór í gegnum flugvöllinn í borginni Zhengzhou.
Boeing 747-8 fraktþota Cargolux
Cargolux og Emirates SkyCargo hófu samstarf í fyrra um frakflug sem er í fyrsta sinn sem að fraktdeild hjá stóru flugfélagi og fraktflugfélag gera á milli sín viðamikinn samstarfssamning.
Þá bættust tveir nýir áfangastaðir við í leiðarkerfi félagsins í Afríku sem eru Douala í Kamerún og Lubumbashi í Congo.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.