flugfréttir
Virgin America kveður háloftin
- Síðasta flugið var flogið í gærkvöldi frá Los Angeles til San Francisco
Virgin America var stofnað árið 2004 og var félagið fljótt að njóta vinsældar meðal Bandaríkjamanna
Bandaríska flugfélagið Virgin America heyrir nú sögunni til en félagið flaug í gærkvöldi sitt seinasta farþegaflug.
Rekstur Virgin America hefur nú verið formlega sameinaður rekstri Alaska Airlines eftir að félagið tók yfir rekstri þess árið 2016.
Síðasta flug Virgin America í gær var flug VX1947 frá Los Angeles til San Francisco og strax við lending var hafist handa við að breyta
öllum merkingum á alls 29 flugvöllum um gjörvöll Bandaríkin og taka niður öll skilti með nafni Virgin America.
Frá og með deginum í dag hafa allar flugferðir Virgin America verið farnar undir merkjum Alaska Airlines
og heyrir kallmerkið „Redwood“ nú sögunni til.
Merkingar Virgin America voru fjarlægðar samtímis á 29 flugvöllum
í Ameríku í gær
Flugfélagið sem allir elskuðu
Virgin America var sennilega eina flugfélagið vestanhafs sem fékk nánast aldrei eina einustu kvörtun og elskuðu flestir Bandaríkjamenn að ferðast með þessu félagi
sem kom með fjólublárri birtu um borð í farþegarýminu og fór skrautlegar leiðir í markaðsherferð sinni líkt og Richard Branson er einum lagið.
Enn á eftir að mála fjölda Airbus A320 þotna í litum Alaska Airlines með brosandi eskimóanum á stélinu en sú vinna hefur staðið yfir að undanförnu frá því Alaska Airlines
ákvað að halda ekki áfram með merki og ímynd Virgin America og verður þeirri vinnu lokið á næsta ári.
Alaska Airlines hefur lengi kallað sig „All Proud Boeing“ þar sem félagið hefur eingöngu haft Boeing 737 þotur
í flotanum en hvernig félaginu á eftir að ganga með að „ætleiða“ yfir 60 Airbus A320, A319 og A321neo þotur
á eftir að koma í ljós síðar.
Virgin America var ungt flugfélag, stofnað árið 2004 en félagið hóf flugrekstur árið 2007 en upphaflega stóð til
að kalla félagið Virgin USA en því var breytt skömmu síðar.
Lýsingin í farþegarýminu lagðist mjög vel í farþega sem kunnu vel við andrúmsloftið um borð
Virgin America var brautryðjandi í nýjungum í afþreyingarkerfi um borð og var félagið það fyrsta í Ameríku til að bjóða
farþegum upp á þráðlaust internet í flugi.
Gíðarleg vinna hafi farið í að samhæfa rekstur félaganna beggja og undirbúa reksturinn til að fá eitt flugrekstarleyfi fyrir félögin en um 110 starfsmenn hafa komið að samrunanum og er um að ræða 39 þúsund blaðsíður af skjölum, 39 handbækur sem skrifaðar voru auk þess sem gerðar voru 1.500 breytingar á verkferlum til að uppfylla kröfur FAA.
Virgin America hefur hlotið fjölmörg verðlaun í flugiðnaðinum m.a. fyrir besta afþreyingarkerfið um borð, bestu hönnun í markaðssetningu, besta lágfargjaldafélagið í Ameríku, besta þjónusta um borð, bestu lýsingu í farþegarými auk þess sem það var valið besta flugfélag Bandaríkjanna 4 ár í röð frá 2013 til ársins 2016 af Airline Quality Rating.
Hér má sjá nokkrar myndir úr sögu Virgin America
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.