flugfréttir

Airbus uppiskroppa með hreyfla fyrir Airbus A320neo

- Hefur haft töluverð áhrif á afkomu Airbus frá áramótum

30. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:49

Airbus A320neo þotur sem bíða þess að verða afhentar frá verksmiðjum Airbus í Toulouse

Airbus hefur átt í töluverðum vandræðum með að afhenda nýjar Airbus A320neo þotur á áætlun vegna skorts á hreyflum.

Flugvélaframleiðandinn evrópski, sem tilkynnti afkomu sína á dögunum eftir fyrsta ársfjórðung ársins, sagði að hagnaður Airbus hefði dregist saman um 12 prósent sem er m.a. tilkomið vegna þess sem færri Airbus A320neo þotur hafi verið afhentar á tímabilinu.

Tom Enders, framkvæmdarstjóri Airbus, segir að skortur á hreyflum væri „mjög krefandi“ aðstæður sem framleiðandinn er glíma við og hafi það sett stórt strik í reikninginn er kemur að afkomu fyrirtækisins.

Vandamál með PW1100G hreyflana frá Pratt & Whitney hefur verið viðloðandi allt frá fyrsta degi sem Airbus A320neo þoturnar komu á markaðinn, sem hafa þessa tegund hreyfla, og hefur Pratt & Whitney hægt á framleiðslu hreyfilsins á meðan verið er að vinna að lausn á vandamálinu.

Þrátt fyrir vandann þá telur Airbus að hægt verið að ná að halda afhendingaráætluninni fyrir árið 2018 en nokkur fjöldi hreyflalausra Airbus A320neo þotna hefur safnast saman á athafnarsvæði Airbus í Toulouse sem bíða þess að verða afhentar til viðskiptavina.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga