flugfréttir

Auka á framleiðsluhraðann á Boeing 767 og smíða fleiri eintök

- Sjá fram á eftirspurn eftir fleiri Boeing 767 þotum vegna uppsveiflu í fraktflugi

30. apríl 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:22

Í dag framleiðir Boeing þrjátíu Boeing 767 þotur á ári

Boeing ætlar sér að auka framleiðsluhraðann á Boeing 767 breiðþotunni sem kom á markaðinn árið 1982.

Ekki er þó um að ræða framleiðslu á Boeing 767 farþegaþotum heldur fraktþotuútgáfunni en í kjölfar töluverðar uppsveiflu sem hefur átt sér stað í fraktflugi í heiminum þá sér Boeing fram á aukna eftirspurn eftir Boeing 767-300F þotum.

Stefnt er að því að afköstin muni aukast um 20% fyrir árið 2020 og verða þá smíðaðar 36 Boeing 767 fraktþotur á ári en í dag eru framleiddar þrjátíu Boeing 767 þotur árlega.

Vöruflutningarisinn FedEx hefur nokkrum sinnum lagt inn pöntun til Boeing í Boeing 767F fraktþotuna og á fyrirtækið nú von á að fá yfir 50 þotur afhentar á næstu árum en Boeing 767 er allt að 30% sparneytnari en þær McDonnell Douglas MD-11 þotur sem eru í flota FedEx.

Á þessu ári hefur Boeing fengið pantanir í sjö Boeing 767 þotur og á eftir að smíða og afhenda 101 þotur sem fara í flota FedEx og til UPS (United Parcel Service).







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga