flugfréttir
Air Canada frestar afhendingum á ellefu Boeing 737 MAX þotum
Boeing 737 MAX þota Air Canada
Air Canada ætlar að fresta því að taka á móti ellefu Boeing 737 MAX þotum og bíða með móttöku á þeim í allt að þrjú ár þar sem flugfélagið kanadíska er að vega og meta aðra valkosti.
Air Canada hefur í dag fengið tólf Boeing 737 MAX 8 þotur afhentar og á félagið von á 49 MAX þotum til viðbótar,
38 af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og ellefu af gerðinni Boeing 737 MAX 9.
Air Canada er meðal annars að skoða möguleika á að taka fyrst inn CSeries-þoturnar frá Bombardier en félagið
á von á 45 þotum af gerðinni CS300.
Félagið vill ekki gefa upp hvort að þetta muni breyta pöntuninni í Boeing 737 MAX þoturnar en pantaðar voru 61
eintak af 737 MAX og áttu afhendingar að standa yfir til ársins 2021.
Calin Rovinescu, framkvæmdarstjóri Air Canada, segir að ástæða þess að félagið ætlar að endurskoða
afhendingaráætlunina sé sú að félagið vilji vera fullviss um að það hafi hentugan fjölda af Boeing 737 MAX þotum
í takt við eftirspurn hverju sinni.
Félagið er einnig að fara losa sig hægt og rólega við Embrear E190 þoturnar og segir Rovinscue að á þeim tíma
sem Boeing 737 MAX þoturnar voru pantaðar var ekki búið að gera ráð fyrir hvaða áhrif CS300 þotan hefði
á flotastefnu félagsins þar sem sú þota var pöntuð síðar.
„Þessar breytingar gefa okkur þann sveigjanleika sem við þurfum á að halda til að taka við Boeing 737 MAX á þeim
hraða sem hentar best svo hægt sé að gera reksturinn sem hagkvæmastan“, segir Rovinescu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.