flugfréttir
Finnskum flugvelli lokað í mánuð vegna framkvæmda
Frá Pirkkala-flugvellinum í Tampere
Pirkkala-flugvellinum í Finnlandi verður lokað tímabundið á næstu vikum á meðan framkvæmdir og endurbætur munu fara fram á honum í sumar.
Finavia hefur fjárfest
fyrir rúma 2.5 milljarða í framkvæmdir á flugvellinum í Tampere sl. fjögur ár svo hann geti tekið við meiri flugumferð um auk þess sem öryggi flugvallarins mun aukast að framkvæmdum loknum.
Ekki verður hægt að takmarka flugumferð um flugvöllinn í Tampere á meðan á framkvæmdum stendur og þarf því að loka honum frá 17. júlí til 12. ágúst.
Þegar Tampere-flugvöllur opnar að nýju þann 13. ágúst mun flugvöllurinn geta tekið við stærri þotum í langflugi á borð
við Airbus A350 þar sem akbrautirnar verða breikkaðar.
Þá stendur til að setja upp ILS aðflugskerfi og koma fyrir LED ljósum á akbrautir sem eru umhverfisvænni kostur
og hluti að stefnu Finavia er snýr að umhverfismálum.
Pirkkala-flugvöllurinn í Tampere er áttundi stærsti flugvöllurinn í Finnlandi en 122.000 farþegar fóru um völlinn
árið 2016 og fljúga sjö flugfélög um völlinn til 12 áfangastaða í Evrópu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.