flugfréttir

Emirates ætlar að leggja 46 flugvélum

- Munu nota nýja Dubai-flugvöllinn sem flugvélageymslu í sumar

2. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 20:28

Flugfloti Emirates á flugvellinum í Dubai

Emirates mun á næstu mánuðum leggja 46 farþegaþotum og þar á meðal tíu Airbus A380 risaþotum vegna skorts á flugmönnum og einnig vegna árstíðarsveiflna.

Ekki er óalgengt að flugfélög leggi nokkrum flugvélum tímabundið utan háannatíma en í þessu tilviki er um umtalsverðan fjölda að ræða.

Þetta er haft eftir heimildarmanni sem er kunnugur rekstri Emirates og kemur fram að þegar sé búið að leggja ellefu Boeing 777 þotum og einni Airbus A380 risaþotu.

Í maí stendur til að taka aðrar fjórtán Boeing 777 þotur úr flotanum og sex Airbus A380 risaþotur og aftur ellefu Boeing 777 þotur og þrjár risaþotur í júní.

Í heildina mun Emirates því leggja 36 Boeing 777 þotum og tíu Airbus A380 risaþotum sem samsvarar 18% af öllum flugflota Emirates sem telur 253 flugvélar.

Boeing 777 þota Emirates

Talið er að kosnaðurinn við að hafa flugvélarnar 46 kyrrsettar á jörðu niðri eigi eftir að kosta Emirates um 4.6 milljarða króna á mánuði.

Þar sem að ekki er til pláss til að geyma allar flugvélarnar á flugvellinum í Dubai þá verður mörgum þotum flogið yfir á nýja Al Maktoum International (Dubai World Central) flugvöllinn sem notaður verður til að geyma flugvélarnar í sumar.

Margir flugmenn hafa ákveðið að snúa aftur til síns heimalands

Þá hefur einhver fjöldi flugmanna yfirgefið Emirates. Þrátt fyrir að flugfélagið sé álitið eitt það besta í heimi til að starfa fyrir þá hafa sumir flugmenn snúið aftir til síns heima þar sem eftirspurn eftir flugmönnum hefur aukist í heimalandinu og hafa þeir þá getað verið nær fjölskyldunni í stað þess að fljúga mjög langar flugferðir sem hefur áhrif á líkamsklukkuna.

Fyrir 10 árum síðan var erfitt fyrir flugmenn að finna starf og laun voru lægri. Í dag er orðin skortur á flugmönnum hjá flestum flugfélögum víðsvegar um heim og hafa margir flugmenn hjá Emirates kosið að sækja um hjá sínu heimaflugfélagi þrátt fyrir skattfrjáls laun, frítt húsnæði í Dubai, auk annarra fríðinda.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga