flugfréttir
1.500 nemendur kynntu sér störf í fluginu á flugdegi í Van Nuys
- „Nauðsynlegt að ná til nemenda á þeim tímum sem skortur er á starfsfólki“
Flugdagurinn „The Sky is the Limit: Aviation Career Day“ fór fram um helgina í Van Nuys í þrettánda sinn
Yfir 1.500 námsmenn í bandarískum menntaskólum gafst kostur á að fræðast um þau störf og þau tækifæri sem bjóðast í fluginu á flugviðburðinum „The Sky is the Limit: Aviation Career Day“ sem fram fór á flugvellinum í Van Nuys í Kaliforníu sl. helgi.
Van Nuys er stærsti flugvöllurinn í Bandaríkjunum er kemur að umsvifum í almanna- og einkaflugi og voru 54
fyrirtæki og aðilar sem kynntu starfsemi sína á hátíðinni sem var haldinn í 13 sinn.
„Á þeim tímum sem við blasir skortur á flugmönnum og flugumferðarstjórum í greininni þá hefur sjaldan verið
eins mikilvægt og að kynna störf í fluginu fyrir nemendum sem eiga eftir að ákveða framtíðarstarfið“, segir
Nury Martinez, borgarfulltrúi í Van Nuys.
„Hvaða áhugamál sem nemendur hafa, þá bjóðum við upp á viðeigandi starf í fluginu hvort sem það er í
flugvirkjun, vélfræði, bókhaldi, markaðsmálum eða flugnámi“, segir Flora Margheritis, stjórnarmeðlimur
hjá Van Nuys flugvellinum.
Yfir 1.500 nemendur kynntu sér störf í fluginu á árlegum flugdegi sem fram fór á flugvellinum í Van Nuys í Kaliforníu
Nemendur tóku þátt í umræðum sem snéru um þær leiðir sem hægt er að fara til að komast inn í flugiðnaðinn
þar sem sérfræðingar gáfu nemendum ráðleggingar um hvernig hægt sé að undirbúa sig fyrir framtíðarstarfið
í fluginu.
Yfir 600 flugvélar eiga leið um flugvöllinn í Van Nuys á hverjum degi sem er heimavöllur fjölda flugrekstraraðila og þá
eru yfir 100 fyrirtæki sem hafa aðsetur á flugvellinum sem skilar yfir 200 milljörðum króna til Kaliforníu-ríkis
á hverju ári með yfir 10.000 starfsmenn.
Van Nuys er einn stærsti flugvöllur í heimi er kemur að einkaflugi með yfir 230.000 flugtök og lendingar árið 2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.