flugfréttir
KC-390 fór út af flugbraut í prófunum
Brasilíska herflutningaflugvélin KC-390
Fyrsta smíðaða eintakið af KC-390 herflutningavélinni frá Embraer fór út af braut í prófunum í gær á flugvelli í Brasilíu.
Engann sakaði í atvikinu en flugvélin var í akstursprófunum á flugvellinum við verksmiðjur
Embraer í Gaviao Peixoto þegar hún fór úr af akbraut og hafa brasilísk flugmálayfirvöld hafið rannsókn á því.
Herflugvélaverksmiðjur Embraer eru staðsettar í Gaviao Peixoto þar sem flugvélar gangast einnig undir flugprófanir og tilraunir en flugbrautin á flugvellinum er ein sú lengsta
í Ameríku og er brautin alls 4.970 nm löng sem samsvarar 16.300 fetum.
Embraer hefur smíðað tvær tilraunarflugvélar af KC-390 herflugvélinni sem er ætlað að verða burðarásinn
í brasilíska flughernum þegar hún kemur á markaðinn.
Fyrsta tilraunarflugvélin, sem ber skráninguna PT-ZNF, flaug á ný fyrir tveimur mánuðum síðan eftir
viðgerð sem fram fór í kjölfar hættulegs atviks sem kom upp í flugprófunum þann 12. október í fyrra
er flugmenn vélarinnar misstu stjórn á henni í prófunum með ofris.
Embraer áætlar að fyrsta eintakið af KC-390 verði afhent til brasilíska flughersins fyrir lok þessa árs.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.