flugfréttir
Qatar Airways býðst til að lána BA nokkrar Boeing 787 þotur
Dreamliner-þota Qatar Airways
Svo gæti farið að Qatar Airways muni lána British Airways nokkrar Dreamliner-þotur en bæði flugfélögin eru meðlimir í oneword flugbandalaginu.
British Airways hefur eins og mörg önnur flugfélög lent í vandræðum með Trent 1000 hreyflana á Boeing 787-9 þotunum
sínum sem þurfa á næstunni að gangast undir lagfærðingar og viðgerðir.
Á sama tíma hefur Qatar Airways ákveðið að draga saman seglin og taka nokkrar þotur úr umferð og sér félagið því leik
á borði að leigja nokkrar Dreamliner-þotur til British Airways.
Qatar Airways hefur áður komið British Airways til bjargar er kemur að skorti á flugvélum en félagið leigði
British Airways nokkrar Airbus A320 þotur í júlí í fyrra með áhöfnum þegar áhafnir British Airways fóru í verkfall.
Viðgerðir á Boeing 787 þotum British Airways munu hefjast í þessum mánuði og standa yfir fram til ágúst en með því að taka
tilboði Qatar Airways gæti flugfélagið breska haldið flugáætlun sinni óskertri í sumar.
British Airways ætlar að fara fram á skaðabætur frá Rolls-Royce vegna vandamálsins með Trent 1000 hreyflanna en galli
í hreyflablöðum hefur valdið því að endingartími blaðanna er mun styttri og hafa nokkur vandamál komið upp í rekstri
þeirra flugfélaga sem hafa Dreamliner-þotur með Trent 1000 hreyflum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.