flugfréttir
Tvær þotur frá Qantas fóru of nálægt hvor annarri
Báðar flugvélarnar voru frá Qantas. Ein að lenda frá Sydney og hin á leið til Sydney
Flugmálayfirvöld í Ástralíu rannsaka nú alvarlegt atvik sem átti sér stað á flugvellinum í Perth er tvær farþegaþotur af gerðinni Boeing 737 fóru of nálægt hvor annarri.
Atvikið átti sér stað þann 28. apríl sl. er þota frá Qantas af gerðinni Boeing 737-800 var í flugtaksbruni á leið til Sydney
þegar önnur þota sömu gerðar frá sama flugfélagi ók yfir flugbrautina í veg fyrir hina vélina sem var í flugtaki.
Flugumferðarstjóri bað flugmennina um að hætta við flugtakið strax og náði vélin að stöðva sig af áður en hún kom að
þeim stað þar sem hin þotan þveraði brautina en sú þota átti að bíða.
Vélin hemlaði það snögglega að einhverjir farþegar skullu með höfuðið í sætisbakið fyrir framan sig.
Í upptöku frá samtali milli flugturns og flugmannanna mátti heyra: „Stop immediately, stop immediately, runway incursion ahead“ á meðan flugmennirnir á hinni vélinni
fengu fyrirmælin: „You have crossed a stop bar and runway incursion – hold position“.
Samkvæmt dagblaðinu The Western Australian kemur fram að um 50 metrar (164 fet) hafi skilið vélarnar í sundur
þegar þotan, sem var í flugtakinu, náði að stöðva.
Fram kemur að staðsetningin sé vel þekkt fyrir hættu á innábrautaratvikum sem þessum og þá er einnig talið að
flugmennirnir hafi blindast af sólinni á þessum tíma dags.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.