flugfréttir
Icelandair flýgur fyrsta flugið til Dublin
Fyrsta flug Icelandair til Dublin lenti upp úr klukkan 11 í morgun á eyjunni grænu
Icelandair flaug í morgun fyrsta áætlunarflugið til Dublin en félagið mun fljúga til höfuðborgarinnar írsku sex sinnum í viku.
Fyrsta flugið til Dublin var flogið með „Vatnajökli“ (TF-FIR) og fór vélin í loftið frá Keflavíkurflugvelli klukkan 7:48 og lenti hún klukkan 11:08 á „eyjunni grænu“.
„Með stækkun leiðakerfis okkar á undanförnum árum og einkum mikilli fjölgun áfangastaða í Norður-Ameríku sjáum við nú tækifæri til að bæta borginni við hjá okkur, enda mun hún þétta og styrkja tengiflugið til og frá Bandaríkjunum og Kanada auk þess sem hún nýtur vinsælda hjá Íslendinum“, segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair.
Það var í október í fyrra sem að Icelandair tilkynnti Dublin sem nýjan áfangastað en flogið verður til borgarinnar allt árið um kring.
Á myndinni sem tekin var í móttökuathöfn á flugvellinum í Dublin í dag er áhöfnin ásamt Boga Nils Bogasyni, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair og Paul O’Kane framkvæmdastjóra hjá Dublin flugvelli, en það er flugstjórinn í fyrsta fluginu, Örnólfur Jónsson, sem mundar skærin.
TF-FIR í lendingu í Dublin í morgun
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.