flugfréttir
Nýtt flugfélag í Afríku pantar sex nýjar Q400 frá Bombardier
Verðmæti pöntunarinnar samkvæmt listaverði er 198 milljónir bandaríkjadalir eða 20,3 milljarðar króna.
Bombardier hefur fengið pöntun í sex nýjar Bombarider Q400 skrúfuþotur frá nýju flugfélagi sem verið er að stofna í Angóla í Afríku.
Það er fyrirtækið African Aero Trading sem pantar vélarnar fyrir hönd hiðs nýja flugfélags, Air Connection Express Transportes Aereos.
Flugfélagið, sem hefur höfuðstöðvar í Lúanda, mun sjá um að fljúga með farþega frá minni borgum og bæjum í Angóla og nærliggjandi svæðum til Lúanda fyrir ríkisflugfélagið TAAG Angola Airlines sem flýgur svo með þá áfram út í heim.
Verðmæti pöntunarinnar samkvæmt listaverði er 198 milljónir bandaríkjadalir eða 20,3 milljarðar króna.
Air Connection Express Transportes Aereos er í eigu nokkurra fyrirtækja og flugfélaga sem eru m.a. TAAG Angola Airlines,
flugumferðar- og flugvallarrekstrarfyrirtækið ENANA, Airjet, Bestfly, Air Guicango auk fleiri aðila.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.