flugfréttir
Lufthansa lýsir bláa litinn
- Gera tilraunir með ljósari lit eftir að nýja útlitið reyndist of dökkt
Ein af júmbó-þotum félagsins hefur verið máluð upp á nýtt og núna með ljósari bláum lit á stélendanum
Lufthansa gerir nú tilraunir með breytingar á nýja útlitinu á flugflotanum sem felur í sér bjartari liti en skömmu eftir að flugfélagið þýska kynnti nýtt útlit á flugvélunum í febrúar kom í ljós að blái liturinn var of dökkur.
Ein júmbó-þota félagsins, sem er af gerðinni Boeing 747-400, hefur verið máluð upp á nýtt og er blái liturinn á stélinu bjartari
og verða gerðar tilraunir með að taka ljósmyndir af vélinni við mismunandi birtuskilyrði.
Yfirmenn Lufthansa komust að því í kjölfar ábendinga í vetur að nýi, blái liturinn hefði verið of dökkur við viss skilyrði
og þá voru þeim sýndar ljósmyndir af vélinni, bæði í New York og í Hong Kong, þar sem stélið leit út fyrir að vera nánast
svart og var því ákveðið að endurskoða litinn.
Lufthansa segir í yfirlýsingu sinni að um uppfærslu sé að ræða og hafi blái liturinn verið lýstur og þá hafi hann fengið
örlítinn keim af fjólubláum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.