flugfréttir

Austrian Airlines þjálfar 150 nýja flugmenn frá grunni

- Greiða 40% af kostnaðinum til baka á 10 árum er þeir hefja störf

12. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 13:12

Flugmenn Austrian Airlines í stjórnklefa á Bombardier Q400 flugvél

Australian Airlines stefnir á að þjálfa yfir 150 nýja flugmenn frá grunni á næstu misserum sem munu gangast undir flugnám á vegum flugfélagsins austurríska.

Þann 9. maí byrjaði tuttugu manna hópur í samtvinnuðu atvinnuflugmannsnámi á vegum Austrian Airlines og verða 34 einstaklingar teknir inn í til viðbótar í ágúst og í nóvember og þá er stefnt á að taka 96 nemendur inn árið 2019.

Flugnámið mun taka um 24 mánuði og er kostnaðurinn um 12 milljónir króna á hvern einstakling en að námi loknu munu þeir greiða 4.8 milljónir af þeim kostnaði til baka á 10 árum eftir að þeir hefja störf hjá Austrian Airlines.

Flugfélagið hvetur konur sérstaklega um að sækja um flugnámsleiðina og einstaklinga sem hafa enga reynslu af flugi.

Flugnámið mun taka um 24 mánuði

Kröfur eru gerðar um að viðkomandi hafi evrópskan ríkisborgararétt, hafi lokið framhaldsskólanámi, sé að minnsta kosti 165 á hæð, hafi vegabréf í gildi, hafi yfirburða góða kunnáttu í ensku og þýsku og hafi ekki meiri nærsýni eða fjarsýni sem nemur -/+ 3.0.

Um 7.000 starfsmenn starfa hjá Austrian Airlines í dag en af þeim eru 1.200 flugmenn sem fljúga 83 flugvélum sem félagið hefur í flota sínum sem eru af gerðinni Airbus, Bombardier og Embraer.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga