flugfréttir
Myndband: Tók stélið af Airbus A321 þotu með vængnum
Airbus A330 breiðþotan var á leið í flugtak til Seoul þegar ákreksturinn átti sér stað
Árekstur átti sér stað á milli tveggja farþegaþotan á Ataturk-flugvellinum í Istanbul í dag er breiðþota af gerðinni Airbus A330 rakst með annan vænginn í stél á Airbus A321 þotu sem var kyrrstæð.
Áreksturinn náðist á meðfylgjandi myndband þar sem sjá má hvar Airbus A330 frá Asiana Airlines er að aka í átt að flugbraut
fyrir brottför til Seoul en fer með hægri vænginn í stél á Airbus A321 þotu frá Turkish Airlines.
Ekki er vitað um hvort einhver slys hafi orðið á fólki en stélið féll af nánast í heilu lagi á meðan vængendinn á A330 þotunni
varð fyrir skemmdum.
Áreksturinn átti sér stað á Ataturk-flugvellinum í Istanbúl eftir hádegi í dag
Atvikið átti sér stað fyrir örfáum tímum síðan í dag og hefur flugið til Seoul verið fellt niður.
Airbus A321 þotunnar frá Turkish Airlines bíður hinvegar umfangsmeiri viðgerð þar sem skipta þarf um stél og athuga með frekari skemmdir en fram kemur að og APU vélarinnar hafi einnig orðið fyrir hnjaski.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.