flugfréttir
Átta farþegar veiktust um borð í þotu Transavia Airlines
Boeing 737-800 þota Transavia Airlines
Átta farþegar veiktust samtímis um borð í Boeing 737-800 þotu hjá Transavia sem var á leiðinni frá Amsterdam til Antalya í gær.
Um 185 farþegar voru um borð í flugvélinni en þegar vélin var í 37.000 fetum skammt norðaustur af Vínarborg fóru
nokkrir farþegar að finna fyrir vanlíðan.
Ákveðið var að halda til Vínarborgar þar sem flugvélin lenti skömmu síðar og voru nokkrir sjúkrabílar sem biðu
vélarinnar á flugvellinum.
Tveir farþegar voru fluttir á sjúkrahús í borginni á meðan hinir sex fengu aðhlynningu á flugvellinum.
Ekki er vitað hvað olli því að farþegarnir veiktust en rannsókn á því stendur nú yfir.
Önnur Boeing 737-800 þota frá Transavia Airlines var send frá Amsterdam til Vínarborgar og flaug hún með farþegana
áfram til Antalya og hafði fluginu því seinkað um fimm og hálfa klukkustund.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.