flugfréttir
Kína biður flugfélög um að „hætta að fljúga“ til Taívan
- Fara fram á að Taipei sé skilgreint sem flugvöllur í Kína
Dreamliner-þota Air Canada í lendingu á flugvellinum í Taipei
Yfirvöld í Taívan hafa sett fram formlega kvörtun gegn Air Canada sem hefur breytt upplýsingum um Taipai á vefsíðu sinni sem er núna skráð sem áfangastaður í Kína.
Air Canada flýgur til Taipei frá Vancouver en flugfélagið kanadíska ákvað að hætta að nefna Taívan
sem aðskilið land frá Kína sem er talið vera tilkomið vegna þrýstings frá kínversku ríkisstjórninni.
Frá og með gærdeginum (19. maí) er flugvöllurinn í Taipei skilgreindur sem kínverskur flugvöllur en ekki
taívenskur og hefur samgönguráðuneytið í Taívan óskað eftir að þessu verði breytt aftur.
Air Canada er ekki eina flugfélagið sem hefur orðið undir þrýstingi um að breyta upplýsingum um Taívan
því Japan Airlines, Korean Air, ANA (All Nippon Airways) og Qantas segjast öll hafa verið beðin um að
tilgreina Taipei sem flugvöll í Kína.
Fram kemur að 36 flugfélög hafi fengið bréf frá ríkisstjórn Kína í Peking um að breyta upplýsingum og hætta
að tilgreina Taipei sem áfangastað í Taívan.
Air Canada flýgur sex sinnum í viku frá Vancouver til Taipei en býður félagið einnig upp á flug
til borgarinnar Kaohsiung í Taívan í samstarfi við EVA Air.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.