flugfréttir
Leitin að MH370 tekur enda
- Engin frekari leit að malasísku farþegaþotunni skipulögð
Engin frekari leit er skipulögð að malasísku farþegaþotunni
Leitin að malasísku farþegaþotunni, flug MH370, sem hvarf þann 7. mars árið 2014, mun taka enda í dag en engin frekari leit er skipulögð og gæti svo farið að flak vélarinnar muni aldrei finnast.
Sú leit sem staðið hefur yfir að þessu sinni hófst í byrjun ársins í kjölfar samnings sem gerður var við fyrirtækið Ocean Infinity
og fór leitin fram á 25.000 ferkílómetra svæði í Indlandshafi.
Samkomulag var gert vegna leitarinnar um að það fyrirtæki sem tæki að sér leitina fengi aðeins greitt
ef að flak malasísku farþegaþotunnar myndi finnast og var um svokallað „no find, no fee“ sáttmála að ræða.
50 mánuðir eru liðnir frá því að flug MH370 hvarf sporlaust yfir Tælandsflóa á leiðinni frá Kuala Lumpur til Peking
með 239 um borð.
Opinber leit á vegum ríkisstjórna Ástralíu, Kína og Malasíu lauk í janúar árið 2017 en vegna þrýstings frá ættingjum
og aðstandendum þá var fengið til bandaríska einkafyrirtækið Ocean Infinity til að hefja nýja leit og var 7 milljörðum
króna heitið til fyrirtækisins ef þeim tækist að finna flakið.
Ocean Infinity hefur ekki tekist að finna flugvélina þrátt fyrir að fyrirtækið búi yfir háþróaðasta tækjabúnaði í heimi
er kemur að neðansjávarleit.
Norska skipið Seabed Constructor hefur tekið þátt í leitinni ásamt bandríska fyrirtækinu Ocean Infinity
Í yfirlýsingu frá Ocean Infinity segir að fyrirtækið hafi ákveðið að taka að sér leitina í virðingarskyni við aðstandendur
og sé það því mjög erfitt að þurfa að tilkynna að leitin er að fara að taka enda án árangurs.
„Við vonum að við getum haldið leitinni áfram síðar og boðið fram okkar þjónustu á ný“, segir ennfremur í
tilkynningu.
Þar sem að nú er komin vetur á suðurhveli jarðar þá verða aðstæður til leitar á suðurhluta Indlandshafs mjög slæmar
þar sem mikil ölduhæð og óveður eru tíð á þessum tíma árs.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.