flugfréttir

Sprungur í veggjum og nötrandi gólf á flugstöð í Manchester

- Flugstöðin var rýmd og farþegar söfnuðust saman á flughlaðinu

29. maí 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:35

Atvikið átti sér stað klukkan 7 í morgun að breskum tíma á flugvellinum í Manchester

Rýma þurfti bráðabirgðarflugstöð á flugvellinum í Manchester í morgun eftir að sprungur fóru að myndast í hluta flugstöðvarinnar með tilheyrandi hávaða og brestum.

Myndum af sprungum í kringum stálbita í loftinu á flugstöðinni hafa verið birtar á Twitter en þá er einnig vitað um sprungu sem myndaðist í gólfi flugstöðvarinnar.

Slökkvilið var kallað út til að rýma þann hluta byggingarinnar sem er nálægt hliði nr. 212 en um tímabundna flugstöð er að ræða sem notuð er á meðan framkvæmdir standa yfir á flugstöðinni sjálfri.

Fram kemur að nokkur skelfing hafi gripið farþega sem heyrðu drunur koma frá veggjum og gólfum og sáu þeir er sprungur fóru að myndast meðfram burðarbitum.

Einungis varð röskun á flugi til Mallorca

Farþegum var komið fyrir utandyra og var stór hópur ferðalanga sem biðu á flughlaðinu en einn farþegi segir að hún hafi haldið að gólfið væri að fara að hrynja.

„Allir stóðu kyrrir og voru að velta fyrir sér hvað væri í gangi þar til að gólfið nötraði eins og það væri að falla niður“, segir annar farþegi í viðtali við breska fjölmiðla.

„Það myndaðist smá sprunga í gólfinu og höfum við rýmt bygginguna“, segir talsmaður flugvallarins í Manchester.

Atvikið hefur aðeins haft áhrif á þá farþega sem voru á leið í flug til Mallorca frá hliði 212 og hefur að öðru leyti ekki orðið nein röskun á flugi um Manchester-flugvöll.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga