flugfréttir
Spá minni hagnaði vegna hækkandi verðs á eldsneyti
- IATA telur flugfélögin vera betur í stakk búin fyrir hækkunina en oft áður
Alexandre de Juniac, framkvæmdarstjóri Alþjóðasamtaka flugfélaganna, í Sydney í gær
IATA, alþjóðasamtök flugfélaganna, telur að hækkandi verð á þotueldsneyti eigi eftir að hafa töluverð áhrif á afkomu flugfélaganna á þessu ári.
Við upphaf ársins taldi IATA að hagnaður flugfélaganna í heiminum yrði í kringum 38 milljarðar
bandaríkjadalir en nú er talið ljóst að hagnaðurinn verði ekki svo mikill.
Þrátt fyrir hækkandi olíuverð þá er talið að flugfélögin standi mun betur að vígi gagnvart hækkuninni að þessu sinni.
Alexandre de Juniac, framkvæmdarstjóri Alþjóðasamtaka flugfélaganna, segir að síðasta spá, sem gerð
var í desember 2017, gerði ráð fyrir olíuverði upp á 60 dali á hverja tunni en í dag er verðið komið
upp í 80 dollara á tunnuna.
„Venjulega hefur svona mikil hækkun orðið til þess að afkoma flugfélaga hefur farið yfir í taprekstur en
við gerum samt ráð fyrir því að þau eigi flest eftir að koma út í hagnað“, segir de Juniac.
IATA mun birta uppfærða afkomuspá þann 4. júní næstkomandi en framundan er ársfundur samtakanna
sem fram fer í Sydney í Ástralíu.
Þá kemur fram að eftirspurnin, bæði í farþegaflugi og fraktflugi, sé ennþá að aukast og hefur farþegum
fjölgað um 6% á árinu á meðan frakflug hefur aukist um 4.1 prósent.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.