flugfréttir
Icelandair snýr aftur til Baltimore
Slökkviliðið á Baltimore-Washington flugvellinum myndar vatnsboga er fyrsta flug Icelandair lenti á flugvellinum
Icelandair hefur snúið aftur til Baltimore en félagið flaug sl. mánudag sitt fyrsta flug á Baltimore-Washington (BWI) flugvöllinn eftir áratugar hlé.
Með fluginu til Baltimore eykur Icelandair framboð sitt inn á hið fjölmenna Washington/Baltimore svæði en Icelandair flýgur nú þegar á Dulles flugvöllinn í Washington og
eru aðeins um 70 kílómetrar á milli flugvallanna.
Baltimore hafði verið í leiðarkerfi Icelandair í mörg ár en 10 ár eru síðan að félagið hætti að fljúga þangað árið 2008.
Á svæðinu búa um 10 milljónir íbúa og er höfuðborgin að sjálfsögðu mikil miðstöð stjórnsýslu og viðskipta í Bandaríkjunum en þetta er fjórða stórborgarsvæðið sem Icelandair þjónar
með flugi á tvo flugvelli.
Nú þegar er boðið upp á flug til JFK og Newark flugvallanna í New York, til Heathrow og Gatwick í London og til Charles De Gaulle og Orly flugvallanna í París.
Fyrsta flugið til Baltimore var flogið með Hekla Aurora vélinni og má sjá á meðfylgjandi mynd er fyrsta fluginu var fagnað með hefðbundnum hætti með heiðursboga
sem slökkviliðsbílar á flugvellinum mynduðu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.