flugfréttir

Ryanair stefnir á að taka yfir allan rekstur Laudamotion

3. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:10

Niki Lauda, eigandi Laudamotion og Micheal O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair

Ryanair hefur náð samkomulagi við hið nýstofnaða flugfélag Laudamotion sem miðar af því að írska lágfargjaldafélagið taki yfir allan rekstur þess eftir fjögur ár.

Fyrrum Formúla 1 ökuþórinn og milljarðamæringurinn, Niki Lauda, sem stofnaði austurríska flugfélagsins Niki árið 2003, eignaðist aftur flugfélagið sitt í janúar á þessu ári en þá hafði félagið verið í eigu Air Berlin sem varð gjaldþrota haustið 2017.

Niki Lauda var ekki lengi að stofna nýtt flugfélag og var Laudamotion kynnt til sögunnar í mars en aðeins liðu nokkrir dagar þar til Michael O´Leary, framkvæmdarstjóri Ryanair, gerði samning við Niki Lauda um kaup á 24 prósenta hlut í félaginu.

Airbus A320 þota Laudamotion á Tegel-flugvellinum

Nú hefur verið tilkynnt að Ryanair hafi gengið frá kaupum á 75 prósenta hlut í Laudamotion og einnig tryggt sér rétt til þess að eignast 100% hlut í flugfélaginu, aðeins þremur mánuðum eftir að félagið var stofnað.

Með kaupunum hefur Ryanair tryggt sér sterka stöðu í Austurríki en Laudamotion flaug sitt fyrsta áætlunarflug þann 25. mars frá Dusseldorf til Frankfurt en í sumar mun félagið fljúga til átján áfangastaða við Miðjarðarhafið frá Þýskalandi, Sviss og Austurríki.

Mikil umsvif hafa átt sér stað í farþegaflugi frá Austurríki til áfangastaða um alla Evrópu en Laudamotion mun næstkomandi laugardag fljúga sitt fyrsta flug frá Vínarborg.

Ryanair segir að félagið mun með kaupum á Laudamotion auka umsvif sín á flugvellinum í Vín umtalsvert og er stefnt á að félagið verði komið með 50 flugvélar á næstu árum sem verða staðsettar í Vín.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga