flugfréttir

Icelandair flýgur fyrsta flugið til San Francisco

3. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 16:28

Boeing 767 þota Icelandair (TF-ISN) á flugvellinum í San Francisco sl.

Icelandair flaug sl. föstudag sitt fyrsta áætlunarflug til San Francisco sem er 23. áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku.

Fyrsta flugið var flogið með Boeing 767 breiðþotunni TF-ISN („Svörtuborgir“) en Icelandair mun fljúga fjórum sinnum í viku til San Francisco fram í október í haust.

Þessi nýja flugleið opnar Icelandair aðgang að hinum risastóra Kaliforníumarkaði á vesturströnd Bandaríkjanna sem nýtist jafnt ferðamannamarkaðinum á Íslandi og tengiflugi félagsins til og frá Evrópu auka þess sem flugið opnar Íslendingum beina leið til Kaliforníu.

Icelandair flaug um skeið til San Francisco í tvö sumur árið 2005 og árið 2006 og var það flug einnig flogið með Boeing 767 þotu.

San Francisco er ein þekktasta og vinsælasta ferðamannaborg í heimi og jafnframt ein af fjölmennustu borgum Bandaríkjanna með um 9 milljónir íbúa á San Francisco Bay Area svæðinu.

San Francisco er fimmta nýja borgin í Bandaríkjunum sem bætist við í leiðarkerfi Icelandair en félagið hefur á sl. dögum hafið flug til Kansas City, Cleveland, Baltimore og þá var fyrsta flugið til Dallas einnig farið sl. föstudag.

Að neðan má sjá ljósmynd sem var tekin þegar forsvarsmenn San Francisco flugvallar og Icelandair opnuðu flugleiðina formlega með því að klippa á borða og það er flugstjórinn í fyrsta fluginu, Steinarr Bragason, sem mundar skærin.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga