flugfréttir
Skiptu um öll hjólastellin á A380 í fyrsta sinn
Fyrsta risaþotan sem Emirates skiptir um hjólastell á var afhent til Emirates árið 2006
Flugvirkjar hjá Emirates hafa lokið við að skipta um hjólastell á risaþotunni A6-EDF en þetta er í fyrsta sinn sem félagið skiptir um öll hjólastellinn á Airbus A380 þotu í einu.
Hjólastellaskiptin, sem fóru fram hjá Emirates Engineering í Dubai, samanstóðu af öllum stellunum fimm sem telur tvö hjólastell undir vængnum og tvö undir skrokknum, auk nefhjólsins.
Airbus A380 risaþotan hefur 22 hjól og en skipt var um allan lendingarbúnaðinn, uppdráttarbúnað, bremsur og
hjólastýringarkerfi en hjólastellin þola flugtaksþyngd upp á 570 tonn og lendingarþunga upp á 390 tonn.
A6-EDF inni í viðhaldsskýli Emirates
Það tók flugvirkja Emirates um 14 daga að skipta um öll stellin undir fyrstu þotunni sem var framleidd árið 2006.
„Það er stór áfangi að hafa lokið við að skipta um hjólastellin á fyrstu Airbus A380 risaþotunni okkar“, segir
Mohammad Jaffar Nasser, yfirmaður yfir viðhalds- og viðgerðardeild Emirates en tvær Airbus A380 risaþotur munu gangast undir sama ferlið á þessu ári.
Emirates hefur umfangsmikla aðstöðu fyrir viðhald á flugflota félagsins en á flugvellinum í Dubai
eru flugskýli sem ná að hýsa sex risaþotur fyrir C-skoðun í einu og stærsta málningarskýli heims fyrir flugvélar
þar sem flugflotinn er málaður reglulega til að viðhalda útliti vélanna.
Hér að neðan má sjá myndband frá Emirates sem sýnir er skipt var um hjólastellin
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.