flugfréttir
Philippine Airlines fær fyrstu Airbus A321neo þotuna
Fyrsta Airbus A321neo þota Philippine Airlines
Philippine Airlines hefur fengið afhenta fyrstu Airbus A321neo þotuna af þeim 21 þotu sem félagið pantaði.
Þotan var afhent félaginu við athöfn í verksmiðjum Airbus í Hamborg og kemur vélin með PurePower hreyflum
frá Pratt & Whitney en Philippine Airlines mun nota fyrstu A321neo þotuna í áætunarflugi frá Manila til áfangastaða
á Indlandi, í Asíu auk Ástralíu.
Philippine Airlines hefur í dag 25 þotur í flota sínum úr A320 fjölskyldunni af gerðinni Airbus A320 og A321
en félagið hefur þar að auki fimmtán Airbus A330 breiðþotur og fimm af gerðinni Airbus A340.
Þá á félagið von á sex Airbus A350-900 þotum en þrjár verða afhentar í september, október og í nóvember á þessu ári og hinar þrjár í mars og í júní árið 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.