flugfréttir

Sækja um nýtt leyfi daginn eftir að leyfið var afturkallað

7. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 19:19

Arkady Evstafiev, eigandi rússneska flugfélagsins Saratov Airlines

Arkady Evstafiev, eigandi rússneska flugfélagsins Saratov Airlines, hefur sent beiðni til rússneskra flugmálayfirvalda þar sem hann sækist eftir leyfi til að stofna nýtt flugfélag.

Saratov Airlines hætti starfsemi sinni þann 30. maí sl. í kjölfar flugslyss sem átti sér í febrúar á þessu ári er þota af gerðinni Antonov An-148 fórst skömmu eftir flugtak frá Moskvu.

Samgönguráðuneyti Rússlands hefur staðfest að það hefi fengið beiðni frá Saratov Airlines um nýtt flugrekstarleyfi undir hinu gamla nafni en rússnesk stjórnvöld hafa tvo mánuði til að taka ákvörðun.

Fram kemur að Evstafiev hafi sótt um nýtt flugrekstarleyfi daginn eftir að félagið var svipt leyfinu í þeim tilgangi að halda rekstrinum gangandi áfram og hafa starfsfólk sitt áfram í vinnu.

Flugmálayfirvöld takmörkuðu starfsemi Saratov Airlines strax daginn eftir flugslysið sem kostaði 71 lífið og var félaginu gert að gera betrumbætur á starfseminni sinni fyrir loka apríl og senda inn gögn sem sýna fram á framför í þeim efnum.

Flugmálayfirvöld töldu að félagið hefði ekki tekið málið nægilega föstum tökum en gerð var m.a. tilraun til að breyta nafni félagsins úr Saratov Airlines í Ivolga Airlines.

Flugfélagið var endanlega svipt flugrekstarleyfinu á þeim forsendum að félagið virti ekki hámarksvinnutíma áhafna auk þess sem í ljós kom að félagið hafði ekki framkvæmt nein reglubundin áfengispróf að handahófi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga