flugfréttir
Thai Airways hættir með Boeing 737-400
- Verða eingöngu með breiðþotur eftir það
Boeing 737-400 þota Thai Airways
Thai Airways verður eingöngu með breiðþotur í flota sínum frá og með haustinu en þá ætlar félagið að hætta að fljúga milli Bangkok og Koh Samui.
Koh Samui er eini áfangastaðurinn sem félagið flýgur með minni farþegaþotum af gerðinni Boeing 737-400 sem er eina þotan í flota félagsins sem er ekki breiðþota.
Þann 2. september verður síðasta flugið flogið til Koh Samui en eftir það hættir félagið með þessa einu Boeing 737-400 þotu og eftir það verður félagið eingöngu með breiðþotur af gerðinni Airbus A330, A350, Boeing 787, Boeing 777, Boeing 747 auk risaþotunnar A380.
Flugbrautin í Koh Samui er 2.060 metrar á lengd og getur því ekki tekið við breiðþotum en Thai Airways mun bjóða upp á flug þangað í samvinnu við Bangkok Airways sem flýgur til flugvallarins með ATR flugvélum og Airbus A319 þotum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.