flugfréttir
Fyrsta Boeing 777 þotan sem smíðuð var tekin úr umferð
- Hefur verið hjá Cathay Pacific í 18 ár
B-HNL er 24 ára gömul, smíðuð árið 1994
Fyrsta Boeing 777 þotan sem smíðuð var á sínum tíma hefur verið tekin úr umferð og færð í geymslu.
Þotan, sem er af gerðinni Boeing 777-200, var smíðuð árið 1994 og var hún tilraunarþota hjá Boeing
í sex ár en fór því næst í flota Cathay Pacific.
Þotan fékk skráninguna B-HNL og hefur hún verið í notkun hjá flugfélaginu kínverska í 18 ár en þann 1. júní sl. flaug þotan sitt síðasta áætlunarflug frá Hong Kong til Xiamen í Kína.
Þotan verður á næstunni færð á Museum of Flight flugsafnið í Everett þar sem nú þegar
eru til sýnis fyrstu eintökin af Boeing 727, 737 auk fyrstu júmbó-þotunnar, Boeing 747-100.
B-HNL var ekki fyrsta Boeing 777 þotan sem afhent var en það var United Airlines sem tók við fyrsta
eintakinu árið 1995.
Á tíunda áratugnum var Cathay Pacific eitt af þeim átta flugfélögum sem fengu afhentar fyrstu Boeing 777
þoturnar en flugfélagið fékk fyrstu Boeing 777-300 þotuna í flotann árið 1998.
Cathay Pacific hefur í dag 69 Boeing 777 þotur af gerðinni Boeing 777-200, -300 og Boeing 777-300ER.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.