flugfréttir

Greiðari leið að flugupplýsingum með nýrri vefsíðu Isavia

- Upplýsingar um flug og þjónustu á Twitter og Facebook Messanger

10. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 15:31

Síðastliðið ár fóru um ein og hálf milljón netenda í 4,8 milljónir heimsókna á vef Keflavíkurflugvallar sem þýðir að hver notandi fer rúmlega þrisvar sinnum á ári að meðaltali

Isavia hefur tekið í notkun nýja vefsíðu en meðal nýjunga sem finna má á nýja vefnum eru upplýsingar fyrir farþega sem sendar eru beint til sín á Twitter og Facebook Messenger.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, opnaði vefinn á aðalfundi félagsins í apríl en þar er öll upplýsingagjöf um flugvelli Isavia á einum stað.

Við gerð vefsíðunnar var byggt á nýrri hugmyndafræði og hún skipulögð út frá þörfum notenda en með nýju vefsíðunni voru vefir Isavia og Keflavíkurflugvallar sameinaðar í eina.

Á vefsíðunni eru upplýsingar um þrettán áætlunarflugvelli en hver þeirra er með sjálfstæða undirsíðu og aðlagast vefurinn fyrir allar tölvur og snjalltæki.

Með nýrri þjónustu frá írska fyrirtækinu BizTweet er gervigreind nýtt til að koma upplýsingum til notenda með þeim hætti sem þeir kjósa en helstu flugvellir heims eru farnir að nýta sér þessa þjónustu og þar á meðal alþjóðaflugvellirnir í Melbourne í Ástralíu og Dubai sem og London City-flugvöllur.

Með þessu geta farþegar fengið upplýsingar um flug sitt í rauntíma á þeim samskiptamiðli sem þeir velja og hvert skref í þeirra ferðalagi er tíundað þar til lent er á áfangastað.

„Isavia vill veita farþegum greiðan aðgang að þeim upplýsingum sem þeir þurfa að fá þegar þeim hentar og með þeim hætti sem þeir vilja,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia. „Til þess viljum við nýta nýjustu og bestu tækni. BizTweet hefur gert okkur þetta mögulegt.“







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga