flugfréttir
Flugstjóri í Kína fær 82 milljónir í verðlaunafé
- Sogaðist næstum því út eftir að rúða brotnaði í stjórnklefanum í 32.000 fetum
Flugstjórinn Liu Chuanjian hefur einnig verið sæmdur titlinum „Hetjuflugstjóri í kínverskri flugsögu“
Kínverskur flugstjóri hjá flugfélaginu Sichuan Airlines hefur fengið verðlaunafé upp á 82 milljónir króna fyrir að hafa lent farþegaþotu félagsins giftusamlega eftir að aðstoðarflugmaður hans sogaðist næstum því út um gluggann á stjórnklefa vélarinnar.
Atvikið átti sér stað þann 14. maí sl. er Airbus A319 þota var í miðju flugi frá borginni Chongqing í Kína
til Lasha í Tíbet en þegar vélin var í 32.000 fetum yfir fjallendi brotnaði hægri framrúðan í stjórnklefanum með
þeim afleiðingum að flugmaðurinn sogaðist næstum því út um gluggann en hann slasaðist einnig er hann fékk
yfir sig glerbrot.
Þá urðu miklar skemmdir á búnaði um borð í stjórnklefanum þar sem eining, sem tilheyrir
sjálfstýringunni, rifnaði næstum því úr mælaborðinu.
„Allt í einu brotnaði rúðan með miklum hvelli og áður en ég veit af þá er flugmaðurinn komin
nánast hálfur út um gluggann“, segir Liu Chuanjian, flugstjóri, en hann kom þotunni niður í 23.000 feta hæð
sem var lægsta örugga flughæðin sem hann gat farið niður í vegna fjalllendisins og lenti hann flugvélinni í borginni Chengdu
í Kína.
Stjórnklefinn um borð í Airbus A319 þotunni eftir lendingu í borginni Chengdu
Flugstjórinn Liu Chuanjian, sem er 45 ára, segist hafa flogið yfir 100 sinnum milli Chongqing og Lhasa.
Þá voru einnig aðrir áhafnarmeðlimir sem hlutu verðlaun fyrir snarræði og rétt viðbrögð við þeim
neyðaraðstæðum sem komu upp um borð er rúðan brotnaði og þrýstingurinn í vélinni féll niður en engan, af þeim 119 farþegum, sem í vélinni voru, sakaði.
Aðstoðarflugmaðurinn Xu Ruichen er á batavegi
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.