flugfréttir
367 þúsund farþegar með Icelandair í maí
Boeing 757-200 þota Icelandair á Dallas/Fort Worth flugvellinum í Texas
Alls voru 367.530 farþegar sem flugu með Icelandair í maímánuði og fjölgaði þeim um 10 prósent miðað við maí á síðasta ári.
Framboð jókst um 15% og þá mældist sætanýting 77,7% samanborið við 81,2% í maí í fyrra.
Farþegar Air Iceland Connect voru um 27 þúsund og fækkaði um 7% á milli ára.
Um miðjan maí hætti félagið flugi til Belfast og Aberdeen og einnig á milli Keflavíkur og Akureyrar og skýrir það fækkunina milli ára. Sætanýting nam 62,0%.
Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi jókst mikið eða um 40% á milli ára. Skýrist það af fleiri langtímaverkefnum en á sama tíma á síðasta ári.
Þá jukust fraktflutningar um 11% á milli ára.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.