flugfréttir
Vara við sprungum í vænglingum á Boeing 767
Vænglingur á Boeing 767 breiðþotu frá Thomas Cook
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa sent út fyrirmæli þar sem flugrekstraraðilar eru beðnir um að framkvæma skoðun á vænglingum (winglets) á Boeing 767-300 breiðþotum og leita eftir mögulegum sprungum.
Það var bandaríska fyrirtækið Aviation Partners Boeing sem byrjaði að bjóða
upp á vænglinga fyrir Boeing 767 árið 2007 og hafa mörg bandarísk flugfélög bætt
vænglingum á Boeing 767 þotur í flota sínum líkt og American Airlines, Delta,
United Airlines og UPS.
Vænglingurinn á Boeing 767 er 3,4 metra hár frá vængfletinum og gerir hann
breiðþoturnar allt að 6% sparneytnari.
Fram kemur að mælt sé með því að flugfélög notist við hátíðnitækni til að leita
eftir örsmáum sprungum á vængbrúninni þar sem vænglingurinn er festur á.
FAA segir að ef sprungur koma fram, sem myndast vegna þreytu, þá sé möguleiki
á því að vænglingurinn losni af vængnum sem getur haft áhrif á stjórn og
stöðugleika vélarinnar.
Tilmælin ná yfir um 140 Boeing 767 breiðþotur í Bandaríkjunum en nokkrar
flugvélar, sem listaðar eru í tilkynningu, eru undanþegnar tilmælununum og þarfnast
ekki skoðunar.
Meðal evrópskra flugfélaga, sem hafa Boeing 767 þotur með vænglingum frá
Aviation Partners Boeing, eru Austrian Airlines, Icelandair og Condor.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.