flugfréttir
Fyrsta A350 með „wing-twist“ fer til Iberia
Fyrsta Airbus A350 þotan fyrir Iberia flaug fyrsta flugið þann 30. maí
Spænska flugfélagið Iberia verður í næsta mánuði fyrsta flugfélagið til að fá Airbus A350 þotu afhenta með nýja „wing-twist“ vængnum.
Airbus kynnti til sögunnar wing-twist hönnunina í fyrra sem er endurgerð hönnun af vængnum
á Airbus A350 þotunum sem kemur einnig með nýjum vængenda.
Vængurinn mun skapa betra loftflæði yfir vænginn sem eykur lyftikraftinn og dreifir betur úr
vænghleðslunni.
Allar Airbus A350-1000 þoturnar munu koma með wing-twist vængnum sem verður einnig
núna framleiddur fyrir A350-900 þoturnar sem er sú tegund sem Iberia fær afhenta í júlí.
„Þetta er bara eðlileg þróun sem á sér stað jafnt og þétt með Airbus A350. Stanslausar endurbætur
er tákn Airbus“, segir Francois Obe, markaðsstjóri Airbus.
Iberia á von á því að fá sextán Airbus A350-900 þotur afhentar á næstu árum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.