flugfréttir
Stöðva allt fraktflug tímabundið vegna viðhaldsmála
Boeing 747-8F fraktþota Nippon Cargo Airlines
Japanska fraktflugfélagið Nippon Cargo Airlines (NCA) ætlar að hætta öllu fraktflugi tímabundið af öryggisástæðum en flugfélagið telur að óviðeigandi smurolía hafi verið notuð við viðhald á einni af Boeing 747-8F þotu félagsins.
Vegna þessa hefur félagið ákveðið að kyrrsetja allan flotann sem telur ellefu júmbó-fraktþotur
af gerðinni Boeing 747-8F og Boeing 747-400F til að ganga úr skugga um hvort fleiri þotur
hafi gengist undir viðhaldsskoðun með ranga tegund af smurolíu.
Félagið gerir ráð fyrir að það taki um eina viku að ganga úr skugga um öryggi flugvélanna áður
en þær fara aftur í umferð.
Nippon Cargo Airlines er dótturfélag Nippon Yusen sem er eitt stærsta og elsta skipafélag í heimi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.