flugfréttir
Airbus opnar fjórða verksmiðjusalinn í Hamborg
Með fjórða samsetningarlínunni færist Airbus nær því takmarki að framleiða 60 A320 þotur á mánuði
Airbus hefur tekið í notkun fjórða samsetningarsalinn í Hamborg þar sem farþegaþotur úr A320 fjölskyldunni eru framleiddar.
Með þessu færist Airbus nær takmarki sínu sem er að framleiða 60 þotur af gerðinni Airbus A320/A321 og A320neo
á mánuði eða um tvær á dag.
„Með nýjustu tækni og hagræðingu í framleiðslu þá náum við að smíða þoturnar með skilvirkari
hætti sem er lykillinn að auknum afköstum“, segir Guillaume Faury, forstjóri yfir farþegaþotudeild Airbus.
Notast er við nýjustu róbótatækni við borun fyrir festingum í nýja samsetningarsalnum
Nýi samsetningarsalurinn kemur með tveimur róbótum sem bora fyrir festingum með mun meiri nákvæmni
sem kallar á minni vinnu sem fer í eftirskoðun.
Farþegaþotur úr A320 fjölskyldunni eru í dag framleiddar á fjórum stöðum í heiminum. Í Toulouse í Frakklandi,
í Hamborg í Þýskalandi, í Tianjin í Kína og í Mobile í Alabama.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.