flugfréttir

LaudaMotion í viðræðum við Airbus og flugvélaleigur

20. júní 2018

|

Frétt skrifuð kl. 14:20

Airbus A320 þota LaudaMotion í lendingu á flugvellinum í Napólí

Austurríska flugfélagið LaudaMotion á nú í viðræðum við Airbus vegna fyrirhugaðrar pöntunar í nýjar farþegaþotur en þá er félagið einnig að ræða við flugvélaleigur sem gætu orðið félaginu út um flugvélar sem yrðu afhentar mun fyrr.

„Það er allt uppselt hjá Airbus til ársins 2020. Það er samt nóg af flugvélaleigum“, segir Niki Lauda, stofnandi og eigandi LaudaMotion sem hefur í dag tíu þotur af gerðinni Airbus A320 og A321.

Í kjölfar kaupa Ryanair á LaudaMotion þá hefur félagið fengið átta Boeing 737-800 þotur frá lágfargjaldafélaginu írska og stefnir LaudaMotion á að vera komið með 20 þotur í sumar.

Í tilkynningu frá Niki Lauda í maí í vor þá kom fram að félagið væri að stefna á að panta um níu þotur úr Airbus A320 fjölskyldunni og mögulega einhverjar A320neo þotur en það færi þó allt eftir því hvaða flugvélar séu tiltækar.

LaudaMotion varð til er Niki Lauda tókst að kaupa aftur flugfélagið Niki við gjaldþrot Air Berlin en í vor keypti Ryanair 24% hlut í félaginu og mun sá hlutur stækka upp í 75 prósent ef yfirvöld í Evrópu samþykkja stærri eignarhlut.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga