flugfréttir
Aldrei eins mörg verkföll hjá flugumferðarstjórum í Evrópu
- British Airways og Ryanair taka höndum saman og senda inn kvörtun
Frá árinu 2005 hafa orðið 357 verkföll meðal flugumferðarstjóra í Evrópu
Árið 2018 stefnir í að verða það versta er kemur að fjölda verkfalla meðal flugumferðarstjóra í Evrópu.
Evrópsku flugfélagasamtökin Airlines for Europe (A4E) segja að fjöldi verkfalla komi sér
mjög illa fyrir flugfélögin sem hafa þurft að fella niður 5.000 flugferðir á þessu ári og hefur það haft áhrif á 784.000 farþega.
Samkvæmt Eurocontrol þá hefur orðið seinkun á 39.000 flugferður í Evrópu vegna verkfallsaðgerða
meðal flugumferðarstjóra í Evrópu sem samsvarar 30 prósent af öllum seinkunum sem orðið hafa.
Samkvæmt tölum frá Evrópusambandinu þá hafa átt sér stað 357 verkfallsaðgerðir meðal
flugumferðarstjóra í Evrópu frá árinu 2005 en 71% þeirra skrifast á franska flugumferðarstjóra.
Willie Walsh, framkvæmdarstjóri IAG, móðufélags British Airways og Iberia, segir að félagið
og Ryanair hafa ákveðið að standa saman og leggja inn formlega kvörtun
til framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins.
„Það er mjög pirrandi þegar seinkun verður á flugi vegna verkfallsaðgerða meðal
flugumferðarstjóra og það hefur áhrif á öll flugfélög og er mjög neikvætt fyrir ferðamannaiðnaðinn
á Spáni og allt hagkerfið“, segir Walsh.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.